Thursday, 17 July 2008

USA

Jæja þá erum við loksins komin til USA og búin að vera í viku. Við byrjuðum á að vera í 3 daga í New York sem var æði, ætlum svo að skoða og gera meira þegar við förum með Ásdísi og Nolyn þangað 1. ágúst. Síðan gekk smá brösulega að komast til þeirra til Kirksville en það hófst á endanum. Byrjaði á því að ég (Allý) kann greinilega ekki muninn á AM og PM ! héldum að við ættum flug 7 um morguninn frá NY en það var víst ekki fyrr en um kvöldið en við föttuðum það rétt í tíma allavega. Síðan þegar við komum í flugið vorum við í minnstu flugvél í heimi, þetta var eins og að fara að fljúga frá Reykjavík til Ísafjarðar, svo lítil var vélin.. en já og svo þurftum við að bíða í 3 tíma útí vél áður en hún fór í loftið vegna groundtraffic á JFK. En við komumst allavega á endanum að hitta Ásdísi og Nolyn.

Annars erum við búin að hafa það rosa gott, svaka hiti hérna í Kirksville og búin að slaka á og hafa það gott.

Setjum inn nokkrar myndir og bloggum svo aftur fljótlega...










kveðja frá Kirksville

Allý og Davíð

Wednesday, 11 June 2008

Markaskorarinn og ísbjörninn...

Davíð spilaði með varaliði BSV um helgina á móti Brøndby. Þeir fóru létt með þann leik og unnu 4-0 og Davíð tók sig til og skoraði bara öll fjögur mörkin :) varnarmaður my ass...



Síðan að allt öðru, ég er nú fyrir löngu búin að komast að því að pabbi minn er einstaklega fyndinn og er alveg klárlega sonur pabba síns.. það kom frétt í Mogganum á mánudaginn um að Ísbjörninn frægi yrði stoppaður upp, einnig var talað um viðvörunarskiltin sem búið vera að setja upp sitthvoru megin við veginn við Þverárfjall..

"Passið ykkur á ísbjörnunum, einhverjir hafa sett upp skilti á Þverárfjalli þar sem varað er við umferð hvítabjarna á svæðinu. Líkur á að sjá þar aftur ísbjörn verða þó að teljast litlar."



"Búið er að koma fyrir tveimur áberandi skiltum, hvoru sínum megin við veginn efst á
Þverárfjalli þar sem varað er við umferð hvítabjarna um svæðið. Enn er ekki vitað hvaða aðilar voru þar að verki."

já þetta var semsagt pabbi minn sem tók sig til og bjó til þessi skilti og setti þau upp...

hann er bara fyndinn

-A

Saturday, 7 June 2008

25 ára !

Davíð minn er 25 ára í dag !




Elsku Davíð innilega til hamingju með daginn sæti minn :)

koss og knús!

-A

Monday, 2 June 2008

Erum á lífi...

Jæja langt síðan að það hefur verið eitthvað bloggað á þessari blessuðu síðu.

Vil byrja á því að óska Gesti og Eyrúnu innilega til hamingju sætu tvíburastelpurnar sínar sem komu í heiminn 1.júní :)

En það er nóg búið að gerast, við skelltum okkur til Íslands í helgarferð og höfðum það eiginlega of gott. Stórskemmtileg heimsókn, gaman að hitta alla og bara frábær ferð.

Núna er það bara skólinn og vinnan á fullu, skólinn klárast hjá Allý 23 júní og svo fer hún til Íslands að vinna og ég verð hér áfram að vinna sveittur þar til við förum til USA 10. júlí.

Síðan er það 20 vikna sónar á föstudaginn og við hlökkum mikið til, bumban stækkar og erum farin að finna smá hreyfngar, Allý samt meira en ég :)

Annars er það bara sól og sumar hérna í Köben, búið að vera geggjað veður og á að vera það áfram :)

enda á nokkrum myndum frá síðustu vikum..


Jóna var að útskrifast þegar við vorum heima


Ég og Odda í sólinni í köben


Dóri 25 ára og við fengum okkur burger


Allý og Odda í Kongens Have

jæja kveð að sinni

word to your mother..

-Davíð

Wednesday, 7 May 2008

...



Mig langar að fá helgi !

Nenni ekki þessu verkefnastandi í svona sól og hita !

p.s. nýjar myndir á myndasíðunni...
A

Monday, 5 May 2008

Sumarið er komið :)


Veðurspáin fyrir þessa viku í köben

Já ég held maður geti nú sagt að sumarið sé komið hjá okkur, verst er bara að maður er inni að læra mest allan daginn, en maður kemst nú aðeins í sólina, við Davíð nælum okkur allavega í nokkrar freknur svo ekki sé meira sagt, við erum góð við freknufésin saman :)

Svo er það bara helgarferð til Íslands núna 20 - 25 maí :)



hlökkum mikið til að fara heim :)

mjög pointless bloggfærslur þessa dagana.. kannski þar sem ég er að læra undir verkefnaskil

jæja kveð héðan úr sólinni

A

Thursday, 1 May 2008

USA here we come..

Jæja þá er allt orðið tilbúið fyrir USA ferðina okkar. Eða allavega búið að panta flugin :)

Danmörk - París - New York 10.júlí

New York - St.Louis 13.júlí - 31.júlí

St.Louis - New York 1.ágúst - 6.ágúst

New York - París - Danmörk 7. ágúst



God hvað ég hlakka til að fara til New York og fara og hitta Ásdísi og Nolyn og gera eitthvað skemmtilegt með þeim :)

en annars gengur allt sinn vanagang hérna, ég orðin þónokkuð hressari og allt gengur bara fínt.. setti prófil mynd af erfingjanum hérna til hliðar

Síðan er lykilorð á myndasíðuna en endilega bara spyrjið ef þið viljið skoða

þangað til næst

bíb

-A